Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

18.apríl á Heilsustofnun NLFÍ (vandræði með þetta nafn..)

Ég hélt ég myndi lesa 30 bækur, skrifa hverja bloggfærsluna á fætur annarri, hlusta á tónlist af cd-spilaranum sem Dagný lánaði mér, tala nú ekki um spænskukennsludiskana með M.T. sem hefði verið svo upplagt að láta síast inn í hausinn á sér hérna í friðsældinni. En, nei nei. Ekkert af þessu gerðist og kemur þar ýmislegt til. Reyndar fór ég á upprifjunarnámskeið í frönsku hér eina nóttina, í DRAUMI, og vaknaði með hausinn fullann af orðum sem ég lærði fyrir hundrað árum, en var búin að gleyma. Það er ekki einleikið hvað mig hefur dreymt undarlega og ótrúlega skýra drauma hér á þessum stað. Ég ætla ekki að ræða það frekar hér.  Það myndi einungis renna styrkari stoðum undir þann grun að undirrituð væri fjarri því að vera með öllum mjalla.

Nú er greinilegt að ,,senn fer vorið á vængjum yfir Flóann"  og maður vonar enn og aftur að sumardagurinn fyrsti sem óðum nálgast beri með sér birtu og yl.


HNLFÍ

Nú er ég sem sagt á "hælinu" reyndar er búið að fjarlægja það heiti úr nafni stofnunarinnar. Var víst búið að fá einhverskonar yfirfærða merkingu, frekar neikvæða. En ef maður hugsar út í það þá er "hæli" alveg fyrirtaksorð, m.a. skylt ens."to heal" sem merkir ,,að lækna", ,,gera heilan" og svo auðvitað tengsl þess við ,,skjól" eð ,,skýli"  að ,,leita hælis".

Allavega er afskaplega gott að vera hér.  

SBG 


Höfundur

Sigríður Birna Guðjónsdóttir

Höfundur heitir Sigríður Birna Guðjónsdóttir og býr á Akureyri, Helgamagrastræti 9 Akureyri.

 

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...imb_og_dval
  • DSC 0050
  • Ágúst 2008.. 319
  • Ágúst 2008.. 228
  • I Love You Brother

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband