Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Fínt á Kanaríeyjum

Við skruppum til Kanaríeyja þann 9. til 16. þessa mánaðar. Þetta var bara fínasta ferð, allt gekk bara órtúlega vel. Við fórum 4 saman, Bassi, Dagný Halla, Áskell frændi og ég. Unnur gat því miður ekki komið með, er í sýningunni í Borgarleikhúsinu. það er búið að segja mér þúsund sinnum hvað loftslagið þarna er gott og æskilegt fyrir gigtveika og gamalmenni. Það reyndist bara alveg satt, ég sem þoli hitann á meginlandinu mjög illa, bjó við góða líðan þarna. Þar við bættist að enginn beit mig, eins og alltaf hefur gerst undanfarið ef ég hef brugðið mér til heitari landa, eða kannski gerðist ekkert vegna ráðstafana sem ég gerði. Ofnæmisspsrautur, -töflur og alls konar vesen. Bragi! Yes!! Ég var svo fegin að Dagný sem er bara 14, skemmti sér vel þarna og Bassi og Áskell fíluðu þetta í botn. Blessaðir karlarnir. Við Dagný áttum reyndar oft fullt í fangi með að fylgja þeim eftir á ókunnum slóðum, því þeir lesa ekki á skilti, eru aldrei sammál um í hvaða áttir á að fara og heyra svo báðir illa, þannig að vitavonlaust var að kalla á eftir þeim ef maður vissi betur hvert ætti að stefna. Nei, nei. Þvilík var þrjóskan að við urðum oft að skipta liði og fara hvor sína leiðina á sama áfangastað, önnur fór með Bassa, hin með Áskeli og svo var þögul samkeppni um hvort teamið yrði á undan. Já það er ýmislegt svona sem getur verið svo skemmtilegt, eða þannig  Cool   Svo er búið að snjóa brjálæðislega síðan við komum heim. En fátt er svo með öllu illt... það er ekki nærri því eins drungalegt þegar snjórinn er úti eins og í rigningardumbungnum og dimmviðrinu sem ríkti hér vikum saman um jólaleytið. Svo er líka sólin farin að hækka á lofti og styttist óðum í þann tíma þegar maður getur farið í Múlann og horft á sólina setjast ekki.....Smile

Höfundur

Sigríður Birna Guðjónsdóttir

Höfundur heitir Sigríður Birna Guðjónsdóttir og býr á Akureyri, Helgamagrastræti 9 Akureyri.

 

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...imb_og_dval
  • DSC 0050
  • Ágúst 2008.. 319
  • Ágúst 2008.. 228
  • I Love You Brother

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband