Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Unnur í frumsýningu á Súperstar í Borgarleikhúsinu

Jæja, nú er búið að frumsýna verkið sem Unnur Birna hefur verið að spila í, Jesus Christ Superstar, Borgarleikhúsinu.

Hún spilar þar á fiðlu eins og engill, hún er frábær! Við sáum rennsli um daginn og ég sá náttúrulega BARA Unni, fannst hún BEST. En auðvitað var þetta allt flott. Sviðsmyndin fannst mér góð, Ingvar Sigurðssoon frábær eins og venjulega og aðrir söngvarar og leikarar gerðu þetta vel, þó hefði textinn mátt skila sér betur hjá sumum. Lokalagið: Gæsahúð og Tár, góðan daginn.

Ég er búin að vera þrælstressuð yfir þessari frumsýningu. Ekki það að nein sértök ástæða hafi verið til þess, svo er ég líka svo oft búin að sjá hvað Unnur mín er töff og einbeitt þegar svo ber undir. Það er bara  mömmuhjartað sem lætur ekki að sér hæða, maður er með hnút í maganum, vöðvabólgu, hraðan hjartslátt og varla viðmælandi þegar elsku ljósin manns eru annars vegar. En þetta gekk nú allt vel og nú er bara að vona að þannig verði áfram.

Til hamingju!


Höfundur

Sigríður Birna Guðjónsdóttir

Höfundur heitir Sigríður Birna Guðjónsdóttir og býr á Akureyri, Helgamagrastræti 9 Akureyri.

 

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...imb_og_dval
  • DSC 0050
  • Ágúst 2008.. 319
  • Ágúst 2008.. 228
  • I Love You Brother

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband