Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008
Við skruppum til Kanaríeyja þann 9. til 16. þessa mánaðar. Þetta var bara fínasta ferð, allt gekk bara órtúlega vel. Við fórum 4 saman, Bassi, Dagný Halla, Áskell frændi og ég. Unnur gat því miður ekki komið með, er í sýningunni í Borgarleikhúsinu. það er búið að segja mér þúsund sinnum hvað loftslagið þarna er gott og æskilegt fyrir gigtveika og gamalmenni. Það reyndist bara alveg satt, ég sem þoli hitann á meginlandinu mjög illa, bjó við góða líðan þarna. Þar við bættist að enginn beit mig, eins og alltaf hefur gerst undanfarið ef ég hef brugðið mér til heitari landa, eða kannski gerðist ekkert vegna ráðstafana sem ég gerði. Ofnæmisspsrautur, -töflur og alls konar vesen. Bragi! Yes!! Ég var svo fegin að Dagný sem er bara 14, skemmti sér vel þarna og Bassi og Áskell fíluðu þetta í botn. Blessaðir karlarnir. Við Dagný áttum reyndar oft fullt í fangi með að fylgja þeim eftir á ókunnum slóðum, því þeir lesa ekki á skilti, eru aldrei sammál um í hvaða áttir á að fara og heyra svo báðir illa, þannig að vitavonlaust var að kalla á eftir þeim ef maður vissi betur hvert ætti að stefna. Nei, nei. Þvilík var þrjóskan að við urðum oft að skipta liði og fara hvor sína leiðina á sama áfangastað, önnur fór með Bassa, hin með Áskeli og svo var þögul samkeppni um hvort teamið yrði á undan. Já það er ýmislegt svona sem getur verið svo skemmtilegt, eða þannig
Svo er búið að snjóa brjálæðislega síðan við komum heim. En fátt er svo með öllu illt... það er ekki nærri því eins drungalegt þegar snjórinn er úti eins og í rigningardumbungnum og dimmviðrinu sem ríkti hér vikum saman um jólaleytið. Svo er líka sólin farin að hækka á lofti og styttist óðum í þann tíma þegar maður getur farið í Múlann og horft á sólina setjast ekki.....


Bloggar | 19.1.2008 | 00:40 (breytt 22.1.2008 kl. 03:22) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eldri færslur
Tenglar
Mínir tenglar
- Tónræktin Tónlistarskólinn Tónræktin Hafnarstræti 101 Akureyri
- Tónræktin Tónræktin er tónlistarskóli sem starfað hefur frá árinu 2004. Stofnendur hans eru hjónin Björn Stefán Þórarinsson tónmenntakennari og Sigríður Birna Guðjónsdóttir framhaldsskólakennari. Við bjóðum upp á fjölbreytt nám og námsleiðir. Góð aðsókn hefur verið að skólanum allan þann tíma sem hann hefur starfað. Við brydduðum upp á mörgum nýjungum í kennsluháttum sem ekki voru til staðar hér í bænum; svo sem hópkennslu, kennslu leikskólabarna, fullorðinna, kennslu fatlaðra þmt. geðfatlaðra. Vórum að nota netið sem hjálpartæki í kennslunni og keypptum til þess myndskjái í hverja kennslustofu. Við komum upp hljóðstúdíói og höfuð boðið upp á kennslu í upptökutækni. Við fórum að kenna rokksöng eftir kerfinu ,,Complete Vocal Techniqe, ásamt fleiri nýungum bæði í námi og kennsluháttum.
- http://tonraektin.is
Bloggvinir
Af mbl.is
Innlent
- Hámarksgreiðslan hækkar úr 800 þúsund í 900 þúsund
- Öflugar þyrlur eru ekki lagervara
- Forngrip stolið frá Reiðhjólabændum
- Bandarískir tollar hafa áhrif: Óvissa ríkir
- 3,3 milljarðar í varnarmál og stuðning við Úkraínu
- Kaupendur komnir að Hótel Bjarkalundi
- Valdeflir hinsegin fólk á flótta
- 125 milljarðar í fjármagnskostnað ergja mig
- Ferðamenn í vandræðum við Landmannalaugar
- Víxlverkunarfrumvarp Ingu hvergi að finna
Erlent
- Norskir kjósendur gramir yfir SMS-skeyti
- Tveir lögreglumenn skotnir til bana
- Skutu fimm til bana í Jerúsalem
- Veita 41 milljarði til varnarmála
- Þrjár ungar konur látnar eftir húsbruna í Noregi
- Dæmd í lífstíðarfangelsi fyrir að bana þremur með sveppum
- Gefur Hamas sína hinstu viðvörun
- Gerðist plötusnúður 65 ára og slær nú í gegn
- Verkföll lama neðanjarðarlestakerfið í nokkra daga
- Íhuga að hýsa hælisleitendur á herstöðvum
Fólk
- Söngvari Supertramp er látinn
- Íslenskur sauðfjárbóndi vekur athygli í auglýsingu
- Við kynntumst 12 árum eftir að dóttir okkar fæddist
- Núna er líf mitt bara klúbbur
- Kókaínlínan sem eyðilagði 4 milljóna dala samninga
- Höfða mál vegna dauða Angie Stone
- Hann var í þessari tilvistarkreppu þegar hann fékk hugljómun
- Ég trúi ekki á heimavinnu
- Sunna ráðin til Listasafns Reykjavíkur
- Laufey tekur þátt í nýrri kvikmynd
Viðskipti
- Ætla ekki að vaxa aðeins til að vaxa
- Hið ljúfa líf: Skyldi þetta vera kóngurinn?
- Orkan er aðalhráefnið
- Jarðtengingin kemur úr samskiptum
- Helgun starfsmanna vandamál
- Gervigreindin mun breyta miklu í rekstri
- Hvurs virði er atvinnustefna?
- Arion og utanríkisráðuneytið benda hvort á hitt
- Fréttaskýring: Einhvers staðar verða vondir að versla
- Tungumálakrafa ESB gagnrýnd