Þetta er óhugnanlegt með þessa jarðskjálfta. Ekkert skemmtilegt að vita af mömmu og pabba staðsettum á þessu hamfarasvæði. Auðvitað er Ísland eitt alsherjar náttúruhamfarasvæði. Jörðin raunar öll. Heimurinn er hamfarasvæði. Hljómar vel. Það er lífshættulegt að lifa.... Nú nú. Svartsýnin komin á flug sem oftar. Best að taka á því máli. Ætti ég að notast við HAM eða TAM? (Hugræna atferlismeðferð eða tilfinningamiðaða atferlismeðferð) Kannski hvoru tveggja? Nei, það er líklegast ekki hægt þar sem þessar aðferðir eru víst í raun andstæðar. Undanfarin ár hafa sprottið upp eins og gorkúlur einstaklingar og stofnanir sem beita þessum aðferðum á aðila í kvíðaröskunargeiranum. Sú síðarnefnda er nýrri. Það veit ég bara vegna þess að um tíma var ég að aðstoða við þýðingar á fyrirbærinu. Það er nú það. En ég var að tala um jarðskjálftana. Mér eru í fersku minni jarðskjálftar og eldgos frá uppvaxtarárunum á Selfossi. A.m.k. tvö eða þrjú Heklugos, sem maður sá vel út um svefnherbergisgluggann og svo Vestmannaeyjagosið. Þá lagði maður leið sína niðrí Stokkseyrarfjöru. Það sást vel þaðan. Svo voru alltaf jarðskjálftar við og við. Sífellt beðið eftir Suðurlandsskjálftanum mikla. Og nú er hann búinn að kom tvisvar, er það ekki annars? Mamma og pabbi hafa alltaf verið með vissan viðbúnað í gangi út af þessari miklu skjálftavirkni. Bókahillur rammlega festar, engir opnir skápar og þess vandlega gætt að engir þungir myndarammar séu fyrir ofan rúmin manns.
Ég vil helst fá þau til mín hingað norður, en það vilja þau nú ekki að svo stöddu. Þau eru líka ótrúlega róleg yfir þessu. Ég var stödd á Lanzarote þegar stóru skjálftarnir riðu yfir, frétti það um leið og það gerðist, með vægast sagt undarlegum hætti. Hringdi auðvitað strax heim og talaði við sallarólega foreldra mína. Bara að þetta sé nú gengið yfir. Auðvitað er alls ekki enn komið á daginn hversu miklar skemmdir hafa orðið á mannvirkjum. Mig grunar nú að ýmislegt eigi eftir að koma í ljós varðandi afleiðingar þessara jarðskjálfta.
Flokkur: Bloggar | 11.6.2008 | 02:26 (breytt kl. 02:27) | Facebook
Eldri færslur
Tenglar
Mínir tenglar
- Tónræktin Tónlistarskólinn Tónræktin Hafnarstræti 101 Akureyri
- Tónræktin Tónræktin er tónlistarskóli sem starfað hefur frá árinu 2004. Stofnendur hans eru hjónin Björn Stefán Þórarinsson tónmenntakennari og Sigríður Birna Guðjónsdóttir framhaldsskólakennari. Við bjóðum upp á fjölbreytt nám og námsleiðir. Góð aðsókn hefur verið að skólanum allan þann tíma sem hann hefur starfað. Við brydduðum upp á mörgum nýjungum í kennsluháttum sem ekki voru til staðar hér í bænum; svo sem hópkennslu, kennslu leikskólabarna, fullorðinna, kennslu fatlaðra þmt. geðfatlaðra. Vórum að nota netið sem hjálpartæki í kennslunni og keypptum til þess myndskjái í hverja kennslustofu. Við komum upp hljóðstúdíói og höfuð boðið upp á kennslu í upptökutækni. Við fórum að kenna rokksöng eftir kerfinu ,,Complete Vocal Techniqe, ásamt fleiri nýungum bæði í námi og kennsluháttum.
- http://tonraektin.is
Athugasemdir
Þú ert skelfilega góður penni væna mín græna!
Ætli jörðin sé ekki búin að ákveða að tortíma sjálfri sér fyrir fullt og allt.
Ég vild'ég væri ísbjörn... lallalla....
Unnur Birna (IP-tala skráð) 16.6.2008 kl. 22:43
Gracias, mia cara bellissima. Það er alveg spurning, þetta með jörðina........
Sigríður Birna Guðjónsdóttir, 17.6.2008 kl. 04:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.