Ja góðan daginn!
Hér er sem sagt fyrsta færslan á þessari bloggsíðu.
Eina ferðina enn er undirrituð á vappi um miðja nótt. Raunar er hún meira en ,,á vappi" því á þessum tíma sólarhrings er hún alltaf hressust og finnst því upplagt að gera ýmis húsverk sem setið hafa á hakanum, þvo gluggana, laga til í skúffum, skúra, hengja upp og brjóta saman þvott, þvo klósettin og svona má lengi telja. Meira að segja hefur hún oftar en einu sinni eldað mat fyrir næsta dag eða bakað köku.
Já, maður er víst meira en lítið undarlegur og á skjön við allt og alla.
Ég þarf til dæmis að fara snemma á fætur á morgun og einsetti mér að fara ekki seint að sofa.
En hvað skeður? Þegar komið er fram yfir miðnætti er eins og heilasellurnar vakni af dvala. Ótal hugmyndir skjóta upp kollinum og lífið virðist bjart og skemmtilegt. Það er nefnilega það. Þá tímir maður ekki að fara að sofa. Loksins eðileg, get hugsað og framkvæmt ýmislegt, en framkvæmdagleðinni eru skorður settar, þar sem nóttin ríkir í mannheimum og þá hvílast venjulegir menn. Hafa fullan rétt á því. Svoleiðis á maður að vera.
Þetta virðist óleysanlegt ,,vandamál" úbbs! Það flaug FLUGA upp í nefið á mér!
Aha. skrifa meira síðar.
Flokkur: Bloggar | 11.10.2007 | 03:11 (breytt kl. 03:13) | Facebook
Eldri færslur
Tenglar
Mínir tenglar
- Tónræktin Tónlistarskólinn Tónræktin Hafnarstræti 101 Akureyri
- Tónræktin Tónræktin er tónlistarskóli sem starfað hefur frá árinu 2004. Stofnendur hans eru hjónin Björn Stefán Þórarinsson tónmenntakennari og Sigríður Birna Guðjónsdóttir framhaldsskólakennari. Við bjóðum upp á fjölbreytt nám og námsleiðir. Góð aðsókn hefur verið að skólanum allan þann tíma sem hann hefur starfað. Við brydduðum upp á mörgum nýjungum í kennsluháttum sem ekki voru til staðar hér í bænum; svo sem hópkennslu, kennslu leikskólabarna, fullorðinna, kennslu fatlaðra þmt. geðfatlaðra. Vórum að nota netið sem hjálpartæki í kennslunni og keypptum til þess myndskjái í hverja kennslustofu. Við komum upp hljóðstúdíói og höfuð boðið upp á kennslu í upptökutækni. Við fórum að kenna rokksöng eftir kerfinu ,,Complete Vocal Techniqe, ásamt fleiri nýungum bæði í námi og kennsluháttum.
- http://tonraektin.is
Athugasemdir
Held ekki að það séu til neinir "venjulegir" menn. Hugsaðu þér þvílíkt frelsi frá gömlum fordómum um hvað sé eðlilegt eða ekki. Allt er eðlilegt að gefnum forsendum - hvaða köku bakar þú oftast? ~ ~
Vilborg Eggertsdóttir, 11.10.2007 kl. 03:46
Halló mamma blogg nýja bloggið ! ég sakna þín strax
en við sjáumst þegar ég kem heim brátt
bæbækv dagný
Dagný (IP-tala skráð) 14.10.2007 kl. 21:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.